Vælkomin á okkara síðu

14.02.2008 15:59:12 / margith

Hæ Hæ

 

Í dag er valentínsdagur, dagur ástanna:d. Margir munu halda upp á þennan dag á ýmsan hátt. Þessi dagur er líka merkilegur fyrir okkur hjóninn. Í dag eru 10 ár síðan við byrjuðum saman:haha:. 10 ár þegar liðin og mikið vatn runnið undir brúnna. Við höfum búið í 3 mismunandi löndum. Eigum 2 æðislega falleg börn. Lífið hefur ekki verið auðvelt en saman höfum við staðist allar þær þrautir sem á vegnum láu8). Gét ekki beðið eftir að sjá hvað næstu 10 árinn hafa að bjóða upp á:haha:.

Hér hefur mikið gerðst. Andrias gerðist tunnukóngur í tunnusláttinum á skólanum, og er hann mjög stoltur yfir því:haha:. Fórum svo út að syngja, enn hér verður farið hús í hús. Fingu börninni helling af nammi og líka pening. Nammið var étið og peningurinn fór í sparibaukana:d.

Þriðjudaginn var bikarkeppni í fótboltanum fyrir skólana hér í bænum. Andrias og guttarnir unnu bikarinn og var mikill fagnaður í skólanum:haha:.

Seinasta fimmtudag fórum við Andrias og ég í skóla hátíð8|. Byrjað var kl 18:30 með söngleiki, sem 8.undi bekkur frumfærði, en allur skólinn var með í veisluni. Síðan var skemmtun og kaffi og bollur fyri þau fullorðnu. Eftir þetta var diskó fyrir börnin. Komum við ekki heim fyrr enn 10:00, en strákurinn fílaði þetta allt saman:haha:.

Ástarkveðjur

Margith 


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 12:36:22 / Vigfús

Hæ hæ...

                          

Gleðileg jól og takk fyrir allar þessar yndislegu kveðjur sem okkur fjölskyldunni hafa borist á

fiski-netinu...!

sem í papírsformi...!

og takk fyrir allar flöskurnar...???

Kannski næ ég að selja flöskurnar....Hmmm...!

22an Fór fjölskyldan í leita að tré á 8 fótum. ( okkara fótum...4x2= hlæjandi ) Fyrsti stoppustaður á leiðinni var pylsuvagninn, freistandi...lyktaði gott...en...Aaa...ókei...allir svangir, smá stopp. Áfram hélt leiðin í gegnum miðbæinn og það var fyrirfram ákveðið að börnin fengju leyfi til að velja það jólatré sem í okkara stofu myndi standa. Bent var á tré og það dregið heim, engin vandræði, enda tveir stolltir snillingar þar á ferð, enn pabbinn fékk leyfi til að skrúa tréið fast í fótinn og Úpsss...Þvílík vinna, aðeins of þykkt, svolítið of hágt, en ókei, loksins stóð tréið fast og netið skorið frá, og viti menn, fallegt og grænt ekta grenitré stóð í stofunni.

Á Þorláki var tréð svo loksins skreytt og sáu þau tvö minnstu um það, en fengu smá hjálp með ljósaseríurnar frá mömmu og pabba. Og nokkrar hunangskökur áttu eftir að bakast sem börnin sáu um að gera og skreyttu eftir sínu eigin vali, enda áttu þær að setjast á jólatréið.

Aðfangadaginn tókum við það bara rólegt, teiknimyndir fyrir þá yngstu en matgerð og undirbúning fyrir þá elstu, enn í ár héldum við okkar eigin jól, bara 4 til borðs með kertaljósi og góðum mat + tilbehør... og...og...og...gott vín.

Við fengum okkur steikta stera-önd sem var hjúpuð í sérstökum safa (sem við tölum ekki um) og fylt með allkyns góðgætum, og Nei, ( það var ekki Quality Street ) en algjört salgæti þegar að því kom að éta.

Í dessert var færeyskur möndlugrautur, Margith fékk leyfi til að setja á diskana og fela möndluna, en ég bar diskana á borð. Og...að sjálfsögðu gleymdi ég að svindla...Margith fékk jú möndluna. ( Vonuðum reyndar bæði að börnin fengju hana ). En þar sem vinningurinn var Trivial Pursuit Disney, vissum við bæði tvö að fjölskyldan myndi fá marga góðar stundir með að spila það.

Eftir, Takk fyrir mat, lá okkara leið inn í stofuna og voru þar nokkur lög sungin fyrir framan jólatréið, sem börnin völdu sér, var neyddur til að stytta fót og topp um 50cm, til að fá stjörnuna á, eins gott þau sáu ekkert stærra..?

Svo kom loksins að því að flokka gjafirnar niður og gekk það nú bara býsna vel að mér fannst. ( Hef þó aldrei unnið á pósthúsi...he he ). Ég setti mig á stól og byrjaði að afhenda gjafir eins og einn og hver góður jólasveinn myndi gera,,!,, margar voru gjafirnar í ár, ( svo ég batt snúru um bæði börnin ) og óhætt er að segja að þau hafi verið skýjunum ofar yfir þeim öllum og þakka þau bæði tvö kærlega fyrir allar gjafirnar.

Fyrsta jóladag, ( eftir að hafa dregið í snúruna og fengið börnin niður úr skýjunum ) fórum við svo til tengdó í sterkt færeyskt lambakjöt og súpu. Fjölskyldurnar mættu og mikið var étið, jólastemninguna vantaði ekki.

Annan í jólum bauð Niels bróðir Margithar úpp á hamborgarhrygg með sykurgljái og rjómaslegnu grænkáli og kartöflum. Teitur sonur Niels átti líka afmæli þann daginn og hefur fyllt heil 12 ár, strákurinn, og óskum við honum hjartanlega til hamingju með það.

( Eins og maður sé ekki saddur nú.....)

Seinna um kvöldið var haldið áfram og djammað var fram á nótt enda höfðum við leigt veislusalinn þar sem við búum.

 

Látum vera að sinni og óskum ykkur öllum gleðilegra jóla þarna heima á gamla fróni frá okkur öllum í Danmörku og þökk fyrir það liðna. Sjáumst, heyrums eða e-mailumst á því nýja sem brátt gengur í garð og megi Guð vaka yfir ykkur öllum.

Enginn er nefndur, svo enginn er gleymdur.


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 20:47:05 / margith

Gleðileg Jól

         

           Gleðileg Jól

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 14:27:20 / margith

Nýjar myndir

Svo eru komnar nýjar myndir:haha:. Eru að finna í Nóvember:!:. Skriv meira seinna:$.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 19:45:09 / margith

Enn eitt afmælið

          

Þessi strákur er 6 ára í dag :D. Til hamingju með daginn elskan mínn :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 17:20:01 / margith

Afmæli og kökubakstur

  I dag eru líðin 3 ár síðan litla prinsessan okkar var fædd:D. Hún var fædd á sjúkrahúsinu í Fredericia kl 11:10 hin 10 November. Hún var fædd með keisara, eins og bróður hennara, hún vildi ekki heldur leggja sig rétt:|. Pabbinn var viðstaddur í grænu læknasvuntunni og fékk svo leyfi til að vera einn saman með henni fyrstu tvo tímana 8). Þótti mér tíminn vera leingi að líða, en loksins fékk hún og pabbinn leyfi til að koma inn til mín, það var yndisleg tilfinning að fá að sjá og halda á henni í fyrsta skiptið:haha:. Fyrir keisarann vissum við ekki hvort það yrði drengur eða stelpa, en í dag er hún hress og orkumikil stelpa. Til hamingju með daginn elskan mín:haha:. 

  Í dag er svo Mortans aften. Og samkvæmt hefð er haldið upp á daginn með heilsteiktri önd sem er að sjálfsögðu fyllt, nammi namm, heyrist bara á Vigfúsi, held að hann hafi bara ljón í maganum:!:  

  Fyrr í dag voru svo bakaðar kleinur, mikil skemmtun fyrir systkinin sem höfðu sína fingra í deiginu og voru einstaklega dugleg :D, bæði við kleinugerð sem við að dreifa hveiti um borð og gólf:$. Höfum ekki séð jafn margar útgáfur af kleinum hingað til en þær voru allavega góðar og börnin skemmtu sér konunglega við baksturinn:haha:. 

  Ég er ennþá í veikindaleyfi eftir vinnuslysið og er nú orðið 8.vikur síðan:$. Ég gerði heiðarlega tilraun til að snúa aftur til vinnu, en varð að gefast upp sama dag, þar sem fóturinn þoldi ekki álagið og bólgnaði aftur upp8|. Eftir að hafa verið hjá lækninum komst ég að því að sýking væri komin í fótinn, sýklalyf og lyf sem koma í veg fyrir blóðtappa voru skrifuð út, skal svo bara taka það rólega næstu tvær vikurnar:haha:.  

   Fyrir þá sem ekki hafa fengið að vita hvað gerðist svo fékk ég bretti sem stóð upp við vegg aftan á löppina :^)( milli hné og hæls ) í vinnuni, sem gaf mér slæm meiðsl á vöðvana og invortis blæðingar, hef aldrei fengið eins stóran marblett á ævinni, ætla ekki heldur að reyna að bæta þetta met:|  

   Nú þar sem ég skal taka það rólegt nota ég tímann heima með börnunum, spilum og leikum og höfum það bara gott:haha:.  Svo eru bara 4 dagar og hvað skyldi gerast þá..?  Kveðjur frá hinni Dönsku Víkinga Fjölskyldunni.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 16:13:58 / margith

Nýjar myndir

Margar nýjar myndir að finna á Myndir 2007

Systkini Sæt


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 16:11:21 / margith

Nýr frændi fæddur 10-9-2007

Sætur frændiMánadaginn 10 Septembur gerðist lítli bróður mín Hans pabbi:D. Fingu þau parið einn flottan strák:D. Óska við þeim til hamingju með skattin :haha:.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 19:27:55 / Vigfús

Segja má að Guðirnir hafi blessað okkur

                            07.07.07

       Jæja, ég vaknaði upp á degi með þrjár 7ur, eða 21 í Blackjack, og hugsaði með mér,   “skyldi heppnin vera með mér í dag.”      

Hér hefur verið mikil rigning ásamt þrumum og eldingum seinustu marga dagana, en þó ekki jafn slæmt eins og hjá vinum okkar í Roskilde sem nú þegar hafa fengið sér nýtt hátíðarlag  “Row Row Row Your Boat Gently Down The Stream”.              

 En í morgun þegar ég vaknaði upp varð mér litið út um gluggan eins og alla aðra daga og viti menn, engin ringing í dag, það var þá og, skyldi þá rigningin vera búin í bili. Hálfskýjað en þó skein sólin sínum bjarta geisla niður til allra í Middelfart, og okkur mest til mikillar gleði, enda stór og merkilegur dagur var að renna upp.       

   Í gegnum 9 ½  ár höfum við unnusta mín gengið í gegnum margt og þar á meðal búið í þrem mismunandi löndum og fengið tvö falleg börn í tveimur mismunandi löndum. Andrias sem er Færeyingur og Arndis sem er Dani.      

 Í dag 07.07.07.   Gengum við elskurnar í það að gifta okkur og sanna ást okkar til hvers annars. Athöfnin fór fram án þess að Íslenska fjölskyldan og Færeyska fjölskyldan var viðstædd, ( Enginn vissi um atburðinn ) Enda þurfti ekki meira en ástina á milli okkar litlu fjölskylduna og vonum við að einn góðan dag verði það mögulegt að safna báðum fjölskyldunum saman og halda góða veislu saman og kynnast hvert öðru aðeins betur.                        

                          Vigfús Már Ragnarsson.           Fæddur: 17.07.1974                   

                          Margith á Rógvu Eysturtún.      Fædd: 26.09.1977                    

                          Andrias Vigfússon.                   Fæddur: 14.11.2001                    

                          Arndis Vigfúsdóttir.                  Fædd: 10.11.2004  

   Kveðja frá hinni Nordiske Vikinge Familie


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 14:00:47 / margith

Loksins loksins...

Hæ hæ!

   Já hér hevur mikið gerst síðan ég skrivaði seinast. Ég er komin með fasta vinnu:), með Vigfús sem verkstjóra. Held ég nú að honum finnist það bara skemmtilegt að fá að skipa mér aðeins fyrir, loksins he he:lol:. Það var sjálfur stjórinn sem spurði mig ef ég væri áhuguð í fastari vinnu hjá SIS í borðdeildinni. Fannst honum að ég ynni bæði fljótari og betur enn flestu (afleisningar karlmenn) hann hafði haft í vinnu8).

   Börnin hafa það bara mjög gott. Arndís talar mikið, eins og bróður hennar. Hún er mikill skemtikraftur og hefur gaman af að fá fólk til að hlæja:haha:. Andrias er mikið áhugaður í geimnum og stjörnunum, og lesur allt sem hann finnur um hann. Einnig er hann mikið áhugaður í eðlum (dinosaurus) og kann nöfnin á flestu þeirra8|.

   Við njótum bara lífið hérna með sólskíni og öllu. Við höfum grillað svo mikið og notið sólarinnar að halda mætti að sumarið væri á enda8). Börninn hlaupa í kringum í stuttbuksum og kjól. Og maður gétur farið í vinnu kl. 6 um morguninn, á boli.

   Svo er Amma mín frá Færeyjum komin í heimsókn:haha:. Hún er hjá foreldrum mínum, og heilsum við upp á hana hvern einasta dag. Gaman að sjá hana eftir so langan tíma, er það heldur ekki svo oft við fáum heimsókn úr útlöndum:$. Hún er komin til að vera í  fermingunni hjá Guðdóttir minni Bettinu, systurdóttur mín. Hún var fermd þann 29. Apríl og var þar meiriháttar veisla haldin:D. Var hún mjög falleg í sínum ferminga kjól. Að sjálfsögðu gerði ég fermingarköku handa henni, og var hún mjög ánægð með hana. Myndir frá ferminguni eru á myndasíðunni.

   Við höfum svo frí í þessa tvo daga og tökum það bara rólegt saman með fjölskylduni.

    Svo er að koma ný frænka eða frændi í fjölskylduna:haha:. Bróðir minn og kærasta hans eiga von á barni, hún er sett til að eiga í byrjun September. Verður gaman að fylgjast með. Þetta verður barnabarn nr. 9 hjá foreldrum mínum. Lángömmubarn nr. 16 hjá Margit ömmu og lángömmubarn nr. 46 hjá Rakul ömmu, má segja að fjölskyldan fari hratt stækkandi8|.

     Ekki mikið meira að segja héðan í bili, Kolin orðin heit, biðjum að heilsa öllum á klakanum.


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 09:51:40 / margith

Flensa og meira...

Já við erum liggjandi veik með flensu þ.e. börnin og ég:(. Er bara allur bærinn veikur. Ekki mikið að frétta, höfum það gott miða við aðstaðurnar. Situm fyrir það mesta öll í stofuni, undir sæng, og horfum á sjónvarp:$.

   Það er ekki líklegt að við komum úpp á klakan þetta árið. Enn er vinnan hjá Vigfús að krevja mikið af honum. Hann hefur ekki einu sinni tíma til að vera veikur, er að drepast af kvefi greijið8|.

   En þið eruð altaf í huga og hjarta okkara.


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 16:31:12 / margith

Vinna og snjór...

Já her er ekki svo mikið að frétta. Við vinnum og vinnum. Vigfús vinnur sem verkstjóri í borðdeildini, og þegar hann ekki vinnur er hann á lángverandi námskeiði í Teiknilega Framhaldsskólanum í Middelfart-Fredericia. Reikna má að námskeiðið standi yfir og út 2007 :) Eftir fleiri mánaði með góðum og hlíju veðri er nú loksins komin vetur. Með snjó og öllu, þetta fýla börnin enn það er býsna erfit að hjóla í slabbinu ( hálkunni ) 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 13:33:32 / margith

GLEÐILEGT ÁR!!!!!!!!!!!!

>


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 18:20:41 / margith

Loksins.....

Já já, svo erum við loksins komin aftur á netið. Tölvan er búðin að fá nýtt netkort svo nú á maður að geta verið á netinu aftur :D . Fyrst viljum við óska öllum gleðilig jól. Hér hefur mikið gerst síðan síðast, verður það að heillri ritgerð en, ég nenni ekki að standa í því..hehe :klikk: . Við héldum jól heima hjá okkur, saman með mínum foreldrum og 'litla' bró. Var þar steikt risa gæs upp á 5,2 kíló. eða, reynt að steikja hana :| , ofnin gaf sig rétt fyrir lokun steikingar 8| . Var þar þá komin pínu panik í fólk, enn Vigfús hljóp yfir til foreldra minna með kartöflurnar, svo að mamma sauð þær og gerði sósu :lol: .Gæsin náði reyndar að steikjast í hitanum sem eftir var í ofninum, ferlega heppið það. Það heppnaðist alt mjög gott og smakkaðist mergjað :haha: .Var svo étin Rís a'lamand með möndlu og fékk Arndís hana. Heppin stelpan, fékk stóra konfektöskju, moli á hvern kjaft frá henni ;) . Jólagjafirnar voru svo opnaðar eftir að nokkur jólalög voru sungin. Gerðu þær allar mikkla lukku og viljum við þakka öllum fyrir gjafirnar :D . Jóladagurin var haldin hjá mínum foreldrum, þar sem öll fjölskyldan var mætt í lambasúpu og steikt lambalæri. 26 Des. héldu við svo smá partý, og fóru fólk ekki heim fyrr en dagin eftir 8| . Nú erum við að vonast eftir því að við fáum eldavél sem fljótast, en það er ansi erfitt að lifa án hennar. Ekki nennir man að lifa af skyndimati :$ eða samlokum til nýárs :|.


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 17:04:36 / margith

Fødingardag.....

Ja vit eru her enn. Hava enn einki internet, men prøva at geva ljód frá okkum av ag óg á. Í dag er tad mín fødingardagur...wheeeheewww. Bert 29 ár ung hihi. bert eitt ár eftir til tad stóra 3 talid. Eg arbeidi hesa tídina á einari stálverksmidju sum gerdir útstød til bilar. Arbeidi eg vid at slípa og seta fyltrid saman og testa tad í einari sér teldu. Nokso strævid arbeidi, men tad gongur. Eri einn av fáum konun sum arbeida har enn er hetta meira mannfólkaarbeidi. Og skitid..... síggji út sum um eg havi ligid undir einum bili og arbeitt....tad havi eg jú næstan hihi. Vigfús arbeidir í sínum starvid og gongur tad gott, skal longu aftur at snakka um lønarhækkun. Vissi hann heldur hesum áfram so sær tad gott út hihi. Andrias og Arndis stórtrívast og hava tad gott. Heilsa øllum Margith v. fam.

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 24159
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti